Shot Scope V5
Shot Scope V5 er snjallt GPS golfúr sem sameinar nákvæmar fjarlægðarmælingar og sjálfvirka höggskráningu í einni einfaldri lausn.

Sjálfvirk höggskráning
Fáðu fulla yfirsýn yfir leikinn þinn með snjallri og sjálfvirkri skráningu sem heldur utan um hvert einasta högg á vellinum. Með skynjurum er hvert högg rakið nákvæmlega og staðfest beint á skjánum.
PinCollect tæknin tryggir rétta staðsetningu pinna og enn betri tölfræði fyrir innáhögg, stutt spil og pútt.
Þú þarft hvorki síma né handvirka skráningu, þú einbeitir þér einfaldlega að leiknum.
Öll gögn birtast á skýru yfirlitskorti og veita aðgang að yfir 100 tölfræðimælingum, þar á meðal Strokes Gained, sem gefa djúpa innsýn í frammistöðu þína.
Greindu leikinn niður í smáatriði eftir kylfum, fjarlægðum og aðstæðum, skoðaðu hvernig aðrir spila sömu velli og nýttu MyStrategy til að móta þína eigin leikáætlun.
Auk þess getur þú deilt árangrinum, safnað viðurkenningum og keppt við aðra, allt á einum stað!